FJÖLMENNUM Á ÚTIFUND Í DAG!
19.11.2012
Í dag klukkan 17:00 verður efnt til mótmælafundar vegna voðaverkanna á Gaza fyrir framan sendiráð Bandaríkjanna á Laufásvegi.
Í tilkynningu frá Félaginu Ísland-Palestína segir að tilefni fundarins séu „grimmilegar árásir Ísraelshers og fjöldamorð þeirra á palestínskum borgurum á Gaza ströndinni...Bandaríkin eru í lykilstöðu til að stöðva blóðbaðið á Gaza. Félagið Ísland-Palestína krefst þess að Bandaríkjamenn með Obama forseta í fararbroddi stöðvi fjöldamorðin í Palestínu."
Kröfur fundarins:
- STÖÐVUM BLÓÐBLAÐIÐ
- RJÚFUM HERKVÍNA
- OBAMA, STOP THE MASSACRE!
- ALÞJÓÐLEGA VERND
- FRJÁLS PALESTÍNA
„Ræðumenn verða Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra og Ahmed Abunahla, jafnréttisnemi við HÍ, frá Gaza.
Fundarstjóri Sveinn Rúnar Hauksson læknir, formaður FÍP."