FRAMSÓKN VILL AÐ ÞJÓÐIN SELJI ÞJÓÐINNI
Hver á raforkukerfið á Íslandi? Skráðir eignaraðilar eru Landsvirkjun, RARIK, Orkubú Vestfjarða og aðrar orkuveitur. En hverjir eiga þessar stofnanir og fyrirtæki? Svar: Landsmenn. Íslendingar sem þjóð eiga raforkukerfið í landinu. Nú vill Framsóknarflokkurinn selja þetta kerfi út úr núverandi eignarhaldi. Og hver á að kaupa? Ja, annað hvort Íslendingar eða útlendingar, segir iðnaðarráðherra Framsóknarflokksins,
Höldum þá áfram að spyrja: Hver á lífeyrissjóðina? Á Íslandi eru allir – launamenn og atvinnurekendur skyldaðir að greiða í lífeyrissjóði. Þess vegna á þjóðin lífeyrirssjóðina.
En að lokum þetta. Þótt þetta hljómi allt farsakennt, og í anda Framsóknarflokksins eins og hann hefur hagað sér í seinni tíð, þá held ég að þegar allt kemur til alls þá sé það rétt hjá Valgerði Sverrisdóttur, sem haft er eftir henni í fjölmiðlum yfir helgina, að einkavæðing raforkugeirans kunni að færa eignarhaldið úr landi. Tilnefning lífeyrissjóðanna af hennar hálfu, sem væntanlegs eiganda raforkukerfisins, er án efa hugsað sem millilending, í bland til að róa landslýð. Í sjálfu sér er gott til þess að hugsa að kjörtímabilið er bráðum hálfnað. Tvö ár til kosninga er hins vegar óhugnanlega langur tími – með þann mannskap við stjórnvölinn, sem nú stendur í brúnni.