GÆSLAN TIL FYRIRMYNDAR EN SÍÐUR BOÐVALD BRASKARA YFIR ALÞINGI
27.04.2019
Held að megi segja happafengur,
heiðursmanninn þann ég tel.
Georg sýnist vera góður drengur,
gæslunni hann stjórnar vel.
Boðvald braskara yfir Alþingi
Braskaranna boð er vald,
brotinn tæpur friður.
Alþingis er undanhald,
orkupakkann styður.
Heimskan er nær en þú heldur
Virðist mér það líka veigamest,
að vilja hugans bæta auðnirnar.
Í höfði þínu dugar heimskan best,
hana finnur örugglega þar.
Kári