ÍSLENSK GAGNRÝNI SAMKVÆMT GAMALKUNNRI FORMÚLU
Utanríkisráðherra Íslands hefur mótmælt hryðjuverkum ísraelska hersins á hendur Palestínumönnum á Gaza-svæðinu í síðustu viku. Átján óbreyttir borgarar, flestir konur og börn, voru þá myrt í bænum Beit Hanun. Ísraelar skynja reiði heimsins og sendimenn þeirra fara nú vítt um veröldina til að útskýra að ódæðið hafi átt sér stað fyrir "tæknileg mistök".
Heimurinn þekkir orðið vel til hinna "tæknilegu mistaka" sem fjöldamorð og ofbeldi ísraelska hernámsliðsins í Palestínu eru jafnan kölluð þegar upp úr sýður í almenningsáliti heimsins.
Sendiherra Ísraels leyfði sér í viðtölum við íslenska fjölmiðla í dag að beina því til Íslendinga að okkur væri nær að byrja á því að fordæma "hina" það er Palestínumenn, áður en við gagnrýndum ísraelsk stjórnvöld. Þetta er ekkert nýtt að heyra úr munni sendimanna Ísraelsstjórnar. Og utanríkisráðherrann íslenski leyfði sér einnig að hafa enn einu sinni yfir bandarísk/ísraelsku formúluna sem jafnan er notuð þegar "vinaþjóðir" gagnrýna Ísrael. Hún er svohljóðandi: "Auðvitað viðurkennum við rétt Ísraels til sjálfsvarnar". Enda þótt