ÍSLENSK STJÓRNVÖLD KOMIN MEÐ NIÐURSTÖÐUR PARÍSARDÓMSTÓLSINS Í HENDUR
Kúrdísku gestirnir sem hér eru - og fjallað hefur verið um hér á síðunni - afhentu í gær niðurstöður Parísardómstólsins (https://www.ogmundur.is/is/greinar/vitnisburdur-kurda-fra-fyrstu-hendi-i-reykjavik) um stríðsglæpi og mannréttindabrot í Kúrdahéruðum Tyrklands.
Diljá Mist Einarsdóttir tók á móti skýrslunni fyrir hönd Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, utanríkisráðherra, sem var í erindagjörðum utan Reykjavíkur. Ragnar Þorvarðarson sérfræðingur í utanríkisráðuneytinu sat fundinn ásamt Diljá Mist.
Kúrdarnir fengu einnig áheyrn hjá utanríkismálanefnd Alþingis í gær. Utanríkismálanefnd fékk einnig niðurstöður Parísardómstólsins í hendur.
Á hádegi í dag – klukkan 12 – verða þeir á opnum fundi í Safnahúsinu við Hverfisgötu í Reykjavík og er fundurinn öllum opinn, sjá nánar: https://www.ogmundur.is/is/greinar/kynnum-okkur-malstad-kurda