LEIKBRÚÐUR FJÁRMÁLAAFLA
Sæll Ögmundur,
Ég vil þakka þér fyrir að vekja máls á TISA samningaviðræðunum á Alþingi. Þetta er grafalvarlegt mál, sem virðist nú liggja í þagnargildi. Ég furða mig á því að þjóðarleiðtogar skuli leggjast svo lágt að setjast að samningaborði um það gerræðislega valdaafsal sem fjölþjóða viðskiptarisarnir vilja fá fram. Þetta sýnir væntanlega ljóslegar en ýmislegt annað, að stjórnmálamenn hafa gerst leikbrúður fjármálaaflanna, hunsa kjósendur sína og fara á bak við þá. Í skjóli leyndar eru þeir að véla um framtíð þjóða sinna, og við leynilega undirskrift verður ekki aftur snúið. Ég skora á þig að halda þessu máli vakandi. Tilhugsunin um málið vekur hjá mér hroll, og ekki hvað síst það, að utanríkisráðherra vor sé fulltrúi þjóðarinnar við þetta samningaborð. Ég treysti honum og hans dómgreind ekki par. Þessi utanríkisráðherra er uppskafningur í mínum augum, og virðist vera uppblásinn af mikilvægi við það að hafa fengið tækifæri til að hitta og kynnast stóru körlunum í Evrópu, telur sig trúlega einn af þeim, og að hann geti gert það sem honum sýnist og þurfi ekki að spyrja kóng eða prest, telur sig hafa umboð til að sniðgenga og vanvirða löggjafavaldið eftir hentugleikum. Það væri forvitnilegt að vita hvort ráðherrann telur sig hafa umboð til að undirrita TISA samning með óafturkæfum hætti án aðkomu Alþingis.
Ég tel ,að það að afsala löggjafarvaldi til fjölþjóðlegu fjármálaaflanna í ýmsum veigamiklum þjóðmálum ætti að fella undir landráð. Nú er það svo að landráð í okkar lögum miðast við svíkja þjóðina til erlendra ríkja, ekki yfirþjóðlegra fjármálaafla. Þarf ekki að endurskoða lögin um landráð í tengslum við TISA og fjármálastofnanir hér á landi. Það er hægt að missa fullveldið með margvíslegum hætti eins og t.a.m. þegar fjárglæframenn svipta þjóðina fjárhagslegu sjálfstæði, og lögin um landráð ná illa til þeirra möguleika sem blasa við nú og hafa komið okkur í koll.
Kveðja,
Ingibjörg