LIFANDI FLOKKUR EN DAUÐUR ÞÓ
30.01.2018
Lifandi dauður líklega er
um léleg heitin vænum
Og trúlega til fjandans fer
flest hjá Vinstri/grænum.
Vandræði Kötu versna brátt
verji ´ún áfram Sigríði
Nú lögbrjótinn frúin lofar dátt
og ver hana fyrir níði.
Nú lögfræðingar líða skort
og læknar illa haldnir
Sjálfsagt reynir sitt á hvort
sjúkir eða baldnir.
Pétur Hraunfjörð