MÆTUM Á MÁLVERKAUPPBOÐIÐ
Reykvíkingar athugið! Í kvöld milli kl. 20-22 verður efnt til málverkauppboðs í Egilshöll til stuðnings framboði Björns Inga Hrafnssonar. Boðin verða upp tíu ómáluð verk eftir Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra. Sérstakir boðsgestir verða fulltrúar Landsbankans og KB banka. Hvað
Sérstakur heiðursgestur og verndari stuðningssamkomunnar verður útrásarkonungurinn, Ólafur Ragnar Grímsson, á Bessastöðum. Og hver verður kóngsins boðskapur í kvöld? Mun hann fá málverk eftir langa tölu um útrásarþörf okkar, afkomenda víkinganna, og dýrðir kapítalismans? Eða flytur hann stutt og snjallt erindi um ómáluðu verkin hans Halldórs og telur hann þau kannski lifandi, kraftmikið og skemmtilegt dæmi um gjöfult samspil auðs, valds og lista? Allt mun þetta koma í ljós í kvöld og margt, margt fleira. Aðgangur er ókeypis og boðið verður upp á léttar veitingar að svipuðum styrkleika og kjörfylgi Framsóknarflokksins mælist nú um stundir
Stuðningsmannanefndin