MINNISBÓK KRISTÍNAR
Ekki leikur á því nokkur vafi að netmiðlarnir gegna sívaxandi hlutverki í fjölmiðlun og opinberri umræðu á Íslandi. Sérstaklega á þetta við um yngri kynslóðir en þeim er orðið tamt að fara með reglubundnum hætti inn á netmiðla og bloggsíður í leit að upplýsingum og áhugaverðri umræðu. Akurinn er orðinn æði víðfemur og uppskeran eftir því. Auðvitað eru gæði uppskerunnar mismunandi. Sumt er gott, vandað og vel ígrundað annað er síðra. Margir hafa valið þann kost að setja inn á heimasíður sínar tengla á áhugaverðar síður. Enn sem komið er hef ég ekki tekið þann kost. Hins vegar hef ég stundum vísað á heimasíður sem mér þykja góðar. Þannig er ástæða til að mæla með "Minnisbók" Kristínar Halldórsdóttur, fyrrverandi alþingiskonu og framkvæmdastjóra VG en þessa "bók" er að finna á vefsíðu hennar: www.kristin.is.
Í nýlegum pistlum fjallar Kristín Halldórsdóttir um nýjan bæjarstjóra á Akureyri, fyrirhugað álver í Helguvík og komandi alþingiskosningar. Þar veltir hún vöngum yfir því hvort eldri borgarar svo og Framtíðarlandið komi til með að bjóða fram í kosningunum í vor. Þar segir m.a.:
... Þessa dagana og væntanlega næstu vikur er áhugaverðast að sjá hvernig málin þróast hjá eldri borgurum og ekki síður hjá Framtíðarlandinu. Talsverður áhugi virðist á framboði hjá hvorum tveggja hópum, en líka mikil andstaða og alls óvíst hvað verður ofan á. Minni spenna er þó í kringum eldri borgara og harla óljóst hvað þar er að gerast. ...Meiri eldur virðist kraumandi hjá félögum í Framtíðarlandinu og það raunar á báða bóga. Þar eru ákafir framboðssinnar, en þar er líka mjög mikil andstaða sem byggist ekki síst á því að sérstakt framboð kæmi hugsanlega verst við þá sem mest og best hafa staðið vörð um náttúruna og barist fyrir vernd hennar og virðingu á Alþingi. Það væri afar óheppileg og í rauninni sorgleg niðurstaða. Mér er auðvitað málið skylt og þætti það afskaplega miður ef þessi yrði niðurstaðan..." (sjá nánar í Minnisbókinni á www.kristin.is ).