MÓTMÆLUM AÐFÖRINNI AÐ JÓHANNI R. BENEDIKTSSYNI !
26.09.2008
Kæri Ögmundur....
Framkoma dómsmálaráðuneytisins, þá sjálfs dómsmálaráðherra, er óréttlát og algjörlega ólíðandi gegn einum besta lögreglumanni landsins, Jóhanni R. Benediktssyni! Ég vona að almenningur mótmæli harðlega, og að dómsmálaráðherra sýni sóma sinn og sjái að sér, að öðrum kosti segi af sér.
Ég vona að stjórnarandstaðan beiti sér harðlega gegn þessu óréttlæti og heimsku, Jóhann R. Benediktsson er fyrirmyndar lögreglustjóri í erfiðasta lögregluembætti landsins. Maðurinn er jafnframt mjög vinsæll sem sést ekki síst á uppsögn yfirmanna lögreglunar á Suðurnesjum í mótmælaskyni!
Ögmundur; hér hefur ykkur stjórnarandstöðunni verið gefið eitt trompið í viðbót, sem þið verðið að spila skynsamlega úr, svo sem mestur stjórnmálaávinningur náist!!!
Þið hafið nú mörg trompin gegn hundum ríkisstjórnarinnar. Mér sýnist að þið séuð með sigurvissa hönd svo lengi að þið farið að spila almennilega úr stjórnmálaspilunum. Mér sýnist þetta svo augljóst, að þið getið tæplega spilað af ykkur, nema að þið reynið það einu sinni enn!
Kveðja,
Úlfur