NÓG KOMIÐ AF GÍFURYRÐUM
29.12.2010
Sæll Ögmundur - Venjan er sú að þingmenn Sjálfstæðisflokksins fái svona meðferð hjá Samfylkingarfjölmiðlunum og er þá sannleikurinn ekkert að þvælast þar fyrir. Nú er sá góði drengur Ásmundur Einar skotspónninn. Sf væntanlega að hefna sín. En er nú ekki kominn tími til þess að þingmenn hætti gífuryrðum í garð hvers annars og reyni að endurheimta eitthvað af virðingu þingsins? Svona skrif um Ásmund eða aðra þingmenn dæma sig sjálf. Ummæli Björns Vals um þremenningana og aðra eru hans orð og dæma hann sjálfann en niðurlægja þingið í leiðinni. Árni Þór svarar væntanlega sjálfur fyrir orð sín um ykkur.
Ólafur I. Hrólfsson