NOKKUR DÆMI ...
Félagi Ögmundur.
Las eftirfarandi í pistlinum þínum í dag: "Menntun er nefnilega ekki sama og prófgráða. Í mínum huga er meira um vert að innihaldið sé í lagi en umbúðirnar. Það er dapurlegt hve margir með ágætar prófgráður upp á vasann koma aldrei neinu á framfæri við sína samtíð - ná aldrei að nýta það sem þeir hafa lært - og kannski lærðu þeir aldrei neitt sérstaklega mikið þrátt fyrir gráðurnar." Ég verð að segja að hugmyndir þínar um skólagöngu og staðfestingu um nám eru harla skrýtnar. Til að staðfesta að þú hafir meðtekið námsefnið tekur þú próf eða færð umsogn þar til bærra aðila. Við háskólanám eða nám á háskólastigi skilar þú ritgerð til að staðfesta að þú kunnir/getir nýtt þér námið að því loknu. Á æðri stigum náms verður þú að verja ritgerðina eða fá hana birta í virtum tímaritum (dr. nám).Tiltaka að viðkomandi hafi stundað nám í einhverju segir ekkert annað en að hann hafi verið innritaður í tiltekinn skóla og búið.
Það segir nákvæmlega ekkert um hvaða þekkingu viðkomandi hefur aflað sér, það vantar staðfestingu þar á, nefnilega prófið. Leyfðu mér að benda á nokkur dæmi úr ferilskrám alþingismanna þar sem annarsvegar eru réttar upplýsingar um menntun og hinsvegar gefið í skyn menntun sem engin staðfesting er á.
Katrín Júlíusdóttir Stúdent MK 1994. Nám í mannfræði við Háskóla Íslands 1995-1999. Námskeið í verkefnastjórn í hugbúnaðargerð hjá Endurmenntunarstofnun Ath. Það eina sem þetta segir er að KJ stúdent og hefur verið innrituð í mannfræði (sennilega nokkuð góður undirbúningur fyrir vinnustaðinn en ekki fyrir íslenskan iðnað).
Ólöf Nordal, Stúdentspróf MR 1986. Lögfræðipróf HÍ 1994. MBA-próf HR 2002.Háskóla Íslands 2001. Ath. Stutt og laggott og staðfest.
Svandís Svavarsdóttir Stúdentspróf MH 1983. BA-próf í almennum málvísindum og íslensku frá HÍ 1989. Stundaði framhaldsnám í íslenskri málfræði við HÍ 1989-1993. Ath. Staðfest nám og staðfesting á innritun sem hefði mátt sleppa.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson .Stúdentspróf MR 1995. BS-próf frá viðskipta- og hagfræðideild HÍ 2005. Framhaldsnám í hagfræði, skipulagsfræði og stjórnmálafræði við Oxford-háskóla, Plekhanov-háskóla í Moskvu og Kaupmannahafnarháskóla Ath. Það sem SDG getur státað sig af er próf frá HÍ, það sem á eftir fer er flakk á milli háskóla án nokkurrar staðfestingar á námslokum. ( þarf ekki staðfest próf til að fá lán frá LÍN?).
Ögmundur Jónasson: Stúdentspróf MR 1969. MA-próf í sagnfræði og stjórnmálafræði Edinborgarháskóla, Skotlandi, 1974. Ath. Eins og það á að vera stutt laggott og satt.
Helgi Hjörvar Stundaði nám í MH 1983-1986. Heimspekinám HÍ 1992-1994. Ath. Hefur engu lokið Kæri félagi menntun er gott vegarnesti í byrjun og gefur forskot en getur reyndar líka flækst fyrir en fólk á eiga ekki að skreyta sig lánuðum fjöðrum.
Davíð Guðmundsson, Aflagranda 21 107 Reykjavík