ORKAN Á EKKI AÐ VERA AUÐLIND Í ÞJÓÐAREIGN SEGIR RÁÐHERRA. HA?
Ég hvet alla, hvar í flokki sem þeir standa, að lesa viðtal við Þórdísi Kolbrúnu R. Gylfadóttur, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, sem birtist á mbl.is í lok síðustu viku.
Í fyrsta lagi segir hún að ríkisstjórnin hafi samþykkt að skattgreiðendur kaupi Landsnet af eigendum Landsnets sem að uppistöðu eru skattgreiðendur sjálfir. Hér er því um það að ræða að taka peninga úr einum vasa okkar til að setja annan. Hér hangir sitthvað á spýtunni sem snýr að einkavæðingu raforkugeirans.
En svo það fari ekki á milli mála þá á Landsnet að sjálfsögðu að vera í eigu almennings framvegis sem hingað til. Það eiga orkuverin að vera einnig og að sjálfsögðu orkuauðlindirnar. Aldeilis ekki hefur mbl.is eftir ráherranum: “Þórdís Kolbrún sagðist hafa heyrt af því að hópur fólks sem ætlaði að berjast gegn samþykkt þriðja orkupakkans á Alþingi ætlaði að fara fram undir slagorðinu „Okkar orka“ og sagðist hún túlka þau skilaboð sem svo að þessi hópur teldi orkuauðlindina af sama meiði og fiskinn í sjónum, þ.e. í sameign þjóðarinnar. Svo er ekki, sagði ráðherra, og lagði áherslu á að vatnsafl og jarðvarmi og nýtingarréttur af þeirri auðlind væri í hendi landeigenda.”
Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir sagði fleira í þessu upplýsandi/afhjúpandi viðtali við mbl.is: “Hún ræddi einnig um þriðja orkupakkann og sagði að þó að umræðan um hann hefði á stundum „farið út um víðan völl“ væri það kostur að hún hefði orðið til þess að bent var á hvað fólst í fyrsta og öðrum orkupakkanum. „Orkupakkarnir voru ekkert annað en markaðspakkar, og sá þriðji er það líka,“ sagði ráðherra ...”
Því miður held ég að í gang sé kominn einkavæðingarkapall orkugeirans og að kaup almennings á Landsneti frá sjálfum sér sé hluti af þessum kapli.
Slíkur einkavæðingarkapall byrjar alltaf á að markaðsvæða allar einingar þeirrar starfsemi sem á að selja, skilgreina og aðgreina einstaka hluta hennar og gera þá þannig söluhæfa. Þegar það hefur verið gert ríður höggið og almenningur er sviptur eignum sínum. Til að hægt sé að selja Landsvirkjun þarf því fyrst að aðgreina Landsnet þar frá.
Þótt Landsnet eigi að sjálfsögðu að vera eign almennings í gegnum almannafyrirtæki eins og nú er eða beint eins og stefnt er að, þá er brýnt að stöðva markaðs- og einkavæðingarferlið og færa jafnframt sjálfar orkuauðlindirnar undir almannaeign og almannastjórn eins tryggilega og nokkur kostur er. Sú vegferð sem við erum á gengur hins vegar í gagnstæða átt!
Tónn ráðherrans er vægast sagt óhugnanlegur og ég trúi því ekki að ríkisstjórn og Alþingi láti þessi sjónarmið verða ofan á. En þetta þurfum við að fá að vita – og það sem fyrst!
Sjá fréttaumfjöllun mbl.is: https://www.mbl.is/frettir/innlent/2019/02/28/hefja_vidraedur_um_kaup_a_landsneti/?fbclid=IwAR3K7kLLGC2RTt8bqz9sM5z8-I5bUHXLfeO414piPdzuBQ180qwSabs92RQ