PREDIKAÐ GEGN RÁNYRKJU
02.03.2014
Í guðþjónustu nú fyrir hádegið á rás 1 var mjög merkileg prédikun séra Kristínar Þórunnar Tómasdóttur. Hún fjallaði um nauðsyn náttúruverndar og að bera virðingu fyrir náttúrunni. Í stað venjulegra blessunarorða í prédikunni bað hún guð allsherjar að varðveita og blessa náttúruna fyrir ágangi rányrkjunnar og skammsýnna sjónarmiða! Þetta er mjög óvenjulegt og þetta gerðist í kirkju eins höfuðvígis afturhaldsins á Íslandi, Vídalínskirkju í Garðabæ. Þessi prédikun ætti að vera skyldulesning eða skylduhlustun allra landsmanna. Prédikunin var fremur einföld enda ætluð æskunni en mjög ákveðin og einbeitt ádeila á rányrkju liðinna ára. Góðar stundir!
Guðjón Jensson