RAUSNARSKAPUR BANDARÍKJANNA - AÐ ÓGLEYMDUM HINUM VILJUGU BANDAMÖNNUM ÞEIRRA
30.12.2004
Á vef RÚV má lesa “Bandaríkjastjórn gerir ráð fyrir að senda 15 milljóna dollara aðstoð á flóðasvæðin í Asíu til að byrja með, en þegar hafa verið lagðir fram 400.000 dollarar.”
Til fróðleiks hefur stríðið í Írak kostað Bandaríkjamenn 200.000.000.000 dollara.
Íslenska ríkistjórnin - hinir viljugu bandamenn- virðist vinna eftir sömu forgangsröð. Ríkisstjórnin hefur lofað 5 milljónum á sama tíma og eyða á að minnsta kosti 300 milljónum í svokallaða friðargæslu, þ.e. íslenska herinn. Krafan er að Íslendingar hætti að hreinsa eftir Bandaríska herinn og verji öllum peningum sem við það sparast til hjálparsarfs vegna náttúruhamfara. Ég fagna tillögu þingflokks VG um aukin framlög til hjálparstarfs.
Rúnar Sveinbjörnsson