SKÚLASKEIÐ Á ENDA EN VARLA VAXTANAUÐ
12.11.2018
Á enda rann Skúla skeið
er skelfingin á dundi.
Og Icelandair jú bara beið
á meðan WoW hrundi.
Hér verðbólgu og vaxtanauð
verkalýðshreyfingin skoðar
Og vinnu uppá vatn og brauð
valdaklíkan boðar.
Pétur Hraunfjörð