SÓSÍALISTAR Á ÞING
16.11.2024
Sósíalistar nú setjast á þing
segir jú tölvuspáin
Vinstri grænir því komu í kring
flokkurinn er dáinn.
Alir vilja þeir gera gott
greyin þurfa næði
Þá verður allt fínt og flott
ef fá þitt atkvæði.
Um fjárlaganefnd og hundahald
Fjárlögin þeir fóru yfir
nú flestir um það tala
Íhaldið vill ef það lifir
að svelta Landspítala.
Leitar að liðsins dreggjum
Því lítið eftir er
Lotinn læðist með veggjum
ei Hvalræðið sér.
Frekjuhundur fær nú hitt
frekar spilltur talinn
Hugsar bara um sig og sitt
í sérverkefni valinn
Hundurinn rekur flesta frá
fáir víst þola hvuttann
Nú heima sitja og horfa á
og senda langa puttann.
Höf. Pétur Hraunfjörð