SPURT UM KJÖRIN
Sæll Ögmundur. Þetta er glæsileg síða sem þú heldur hér úti. Ég er ekki skoðanabróðir þinn í Pólitík, en les þessa síðu reglulega. Ég var að skoða glæsilega heimasíðu VG, þar kemur fram eftirfarandi um þig "Hlunnindi Alþingi greiðir fyrir símakostnað og áskrift dagblaða. Auk þess fæ ég greiddan kostnað, sem tengist þinginu og nam hann 190 þúsund krónum á sl. ári. Hér vegur þungt kostnaður við heimasíðu mína en einnig kostnaður vegna skjalaþýðinga". Mín spurning til þín er eftirfarandi: Borgar Alþingi fyrir þig heimasíðugerð ? Dagblaða áskrift ? Hvernig skiptist sá kostnaður ? Það var fróðlegt að sjá að þú skulir fá samtals um 41.500 kr á mánuði í fastan ferðakostnað til að reika um kjördæmið Reykjavík Suður, ertu með einhverjar greiðslur á mánuði í óreglulegan ferðakostnað innan kjördæmisins ? Einnig langar mig til að vita þar sem að þú ert með samtals um 660.000 í laun á mánuði, hvað fékkstu í ferðadagpeninga á síðasta ári ? Hvað fórstu margar utanlandsferðir á "annara manna" vegum s.s Alþingis/félagasamtaka ? Ég veit að þetta er mikið af spurningum, en það væri afar fróðlegt ef þú gætir gefið þér smá tíma til að svara fróðleiksfúsum kjósanda.
Með von um svör
Hjálmar Helgason
Sæll Hjálmar.
Þakka þér góð orð um síðuna mína. Upplýsingar um kjör mín er að finna bæði á þessari síðu og einnig á síðu VG. Þú spyrð um nokkur atriði varðandi kjör mín, vilt til dæmis fá að vita hvort ég fái kostnað vegna heimasíðu minnar greiddan. Svarið er játandi.
Með kveðju,
Ögmundur