STUÐNINGUR ÚR KÓPAVOGI
Sæll vert þú Ögmundur
Við sem vorum stuðningsmenn þínir í síðustu alþingiskosningum, lýsum yfir fullum stuðningi við andóf þitt og annarra þingmanna Vinstri grænna við tilraunir Sigurðar Kára og nokkurra annarra unglinga, til að koma víni og bjór inn í matvöruverslanir.
Þær umræður sem verið hafa í fjölmiðlum um þessi mál hafa fyrst og fremst einskorðast við aukið aðgengi að áfengi og hvort þetta muni breyta því magni sem þjóðin neytir.
En það hangir mikið fleira á spýtunni sem hefur lítið eða ekki verið minnst á.
Sigurður Kári nefndi sem dæmi í sjónvarpsviðtali, að misnotkun Grænlendinga á áfengi stafaði af takmörkuðu aðgengi. Þarna á hann trúlega við vandamál Inúitaþjóðarinnar, sem hefur á nokkrun áratugum verið flutt út úr steinaldarsamfélagi, inn í evrópskt nútímasamfélag með öllum sínum kostum og göllum.
Mættu þá íslenskir þingmenn mynnast þess að ekki er langt um liðið síðan feður þeirra og mæður bjuggu í torfbæjum.
Þá hafa fylgjendur bjór- og vínmatvælaverslana látið í það skína, að Íslendingar drekki mun minna áfengi en opinberar tölur gefi til kynna, því erlendir ferðamenn séu orðnir svo fjölmennir hér á landi að þeir muni eiga verulegan þátt í drykkjunni.
Það er með ólíkindum ef þessir menn hafa aldrei orðið vitni að því, er þessir erlendu ferðamenn kippa að sér hendinni þegar þeir kynnast verðlaginu á þessum varningi hér á landi. Nákvæmlega það sama gerðist hjá fjörutíu manna hópi Íslendinga, sem voru á ferð í norður Noregi nýlega. Þeir voru flestir ferðavanir suður við Miðjarðarhaf og pöntuðu margir hverjir vín með kvöldmatnum fyrsta kvöldið án þess að stúdera vínlistann mikið.
En þeim brá í brún þegar farið var að borga. Þá var þetta sama ræningjaverðið og á Íslandi. Eftir þetta var ekki pantað vín með kvöldmatnum.
Sem dæmi um verðlag á áfengi hér á landi, þá er verð á góðu koníaki í sérverslun á Spáni einungis helmingur af verði á sambærilegu koníaki hjá ÁTVR.
Þar sem við höfum séð vín í matvöruverslunum erlendis, þá virðist ekki vera um mikið vöruúrval að ræða. En í verslunarmiðstöðvum virðist vín og áfengi hverskonar vera selt í sérverslunum. Þar með er hægt að bjóða upp á meira vöruúrval.
Eitt er það enn sem vert er að minna á. Íslenska ríkið annast áfengisverslun á Íslandi.
Það annast og kostar löggæslu, dómgæslu, rekstur fangelsa og heilbrigðisþjónustu að stórum hluta. Misnotkun áfengis veldur samfélaginu margvíslegum og miklum útgjöldum í áðurnefndum málaflokkum.
Ekki hefur heyrst á Sigurði Kára að hann hyggist láta kaupmenn leggja sitt af mörkum til áðurnefndra málaflokka til samræmis við það sem ríkið hefur orðið að
Við árnum þér allra heilla,
Eldri félagar í Kópavogi
Sigurjón Antonsson
Hafsteinn Hjartarson
Sigurður Flosason
Steinar Lúðvíksson
Svanur Halldórsson
Sveinn Jóhannsson
Heilir og sælir félagar góðir. Hjartanlegar þakkir fyrir góð orð.
Kv.
Ögmundur