ÞJÓÐNÝTING OG ALRÆÐISVALD?
Umræðan um ný fiskveiðistjórnunarlög er umhugsunarverð - m.a. að tvennu leyti.
Í fyrsta lagi eru umhugsunarverðar þær staðhæfingar úr ranni útgerðamanna og samherja þeirra á hægri væng stjórnmálanna, að hugmyndir séu nú uppi um að „þjóðnýta" sjávarauðlindina! Þar með er sagt fullum fetum að hún hafi verið einkavædd, að núverandi kvótahafar eigi fiskinn í sjónum. Við vitum að þannig hafa sumir útgerðarmenn litið á málin og hagað sér í samræmi við það - engan veginn allir, en sumir hverjir: Veðsett óveiddan fisk og tekið fjármuni sem þeim hafa þannig áskotanst út úr greininni til að braska með um víðan völl. Um þetta eru ófá dæmi í aðdraganda hrunsins. Einnig hitt að kvótahafar hafa sumir lagt meira upp úr sölubraski og að hagnast á leigumarkaði en veiðum og vinnslu. Þetta eru undantekningarnar en ekki reglan.
Þegar nú stendur til að styrkja lagagrunn undir því, sem reyndar segir í núverandi lögum að þjóðin eigi sjávarauðlindina, og jafnframt reisa skorður við braski, þá heitir það þjóðnýting! Ég leyfi mér að efast um að heiðvirðum mönnum á meðal útgerðarmanna hugnist málflutnnigur af þessu tagi.
Fróðlegt þykir mér að fá þetta fram. Hitt er líka gott að sjá að þingmenn - alla vega í stjórnarmeirihlutanum taka vel þeirri hugmynd að svipta eigi sviksamar útgerðir veiðiheimildum - það er að segja verði þær uppvísar að því að brjóta þau lög og þær reglur sem samfélagið hefur sett.
Sjá Illuga Gunnarson: http://www.pressan.is/Frettir/LesaFrett/illugi-segir-alraedisvald-stjornmalamanna-i-efnahags--og-thjodlifinu-felast-i-hugmyndum-innanrikisradherra
Umfjöllun og viðbrögð á Smugunni: http://smugan.is/2012/04/ogmundur-vill-ad-skurkar-verdi-sviptir-eignum-og-nytingarretti/
http://smugan.is/2012/04/loghlydni-forsenda-veidileyfis-smjorklipa-segir-hreyfingin/