ÞÖGGUN Á ALDREI RÉTT Á SÉR
Á fundi VG sl.fimmtudagskvöld í Kópavogi kom lítillega til umræðu málefni sem var ágreiningur um milli Samfylkingar og VG þegar þeir sátu saman í ríkisstjórninni. Þú barst fram málið en Samfylkingarráðherrar töldu það ekki koma til greina. Féll svo það mál niður að sinni.
Ekkert barst út af ríkisstjórnarfundinum um þetta mál eða þennan ágreining. Þetta er vafalaust aðeins eitt mál af mörgum þar sem þessir flokkar voru ekki samstiga, en þar sem þeir voru sammála um ýmis önnur mál og höfðu gríðarlegum verkefnum að sinna, þá munu aðilar hafa tekið þá afstöðu að láta ekki ágreining um þetta tiltekna mál (og ýmis önnur) kom fram. Þetta er út af fyrir sig skiljanlegt sjónarmið.
Gallinn er bara sá að með slíkri þöggun tók VG sinn hluta af ábyrgðinni á þessu tiltekna mál. Það þýðir lítið síðar (t.d. fyrir kosningar) að koma fram og segja frá slíkum ágreiningsmálum, það virkar ekki trúverðugt. Þótt menn eða flokkar starfi saman að ákveðnum málum eiga þeir að geta deilt opinberlega um ágreiningsmál sín. Ef þeir halda það skaði þá út í frá verður bara að hafa það.
Jón Torfason
Málið sem Jón Torfason vísar hér til er ágreiningur um hvort loka ætti ratsjárstöðvum sem tengdust veru hersins hér á landi eða hvort burðast ætti með hluta þessa kerfis áfram inn í framtíðina. Ég var því andvígur og lagði fram tillögu þar að lútandi við lítinn fögnuð Samfylkingarinnar. Varðandi þöggunina tel ég að Jón Torfason hafi lög að mæla!
ÖJ