TIL HVERS BÓNUSGREIÐSLUR Í BÖNKUM?
04.03.2015
Ég hef verið að fylgjast með umræðum á Alþingi um bónusa í bönkunum og verð að segja eins og er að ég ætlaði varla að trúa því að ríkisstjórnin vogaði sér að setja fram frumvarp um auknar heimildir til bónusgreiðslna. Bankarnir sýndu hreinan gróða upp á tæpa hundrað milljarða árið 2014. Þar af komu þrjátíu milljarðar af þjónstugjöldum, hitt af háum vöxtum og braski. Bónusarnir eru þá væntanlega til að örva mannskapinn til að ná enn meira til eigenda sinna með ennþá hærri vöxtum og ennþá hærri þjónstugjöldum! Þetta getur ekki gengið upp.
Kv.,
Johannes Gr. Jónsson