Tveir góðir saman
Trump og Pútín er pínlegt lið
passa vel saman í heimsófrið
innrætið dylja
einræði vilja
og færa heiminn á miðalda sið.
Svipar hverjum til sinna
Trump & Pútín standa í ströngu
stela löndum öðrum frá
Ei kunna mun á réttu eða röngu
rauna framtíð allir sjá.
Heimsvaldasinninn
Nú makkar Trump mikið
og margt vill hann fá
Í Ameríku er allt ósvikið
endalaus drauma þrá.
það er ekki allt sem sýnist
Flokka gjaldþrot fólkið sér
var fjarri öllum vonum
því velti ég auðvita fyrir mér
má aldrei treysta konum.
,,Já íslenskur vetur”
Úti norðan kaldi kælir
kyngir niður snjó
Herðir frost á hitamælir
ég hef fengið nó.
Hundurinn ei hafður með
Þau eru að taka sig til
er tilbiðja stól Bjarna
Eitt þarna alls ekki skil
engin Jón þarna?
Ríkasta fólkið fékk völd og heimsyfirráð
Með frekju fer Trump vítt
fágæta andstyggð teymir
það er svo sem ekkert nýtt
um heimsyfirráð dreymir.
SLÆMT AÐ HEYRA KÆRI VINUR
Heilsufarið er heldur slæmt
Hósti með verk í lungum
Höfuð lúið og hjartað dræmt
Hugsunum veldur þungum.
Útlitið er ekki gott
Íhaldið er nú illa statt
í eftir leit að sonum
Getur varla Davíð glatt
að láta undan konum.
Frjálshyggjustjórnin
Kristrún vill ekkert segja
Það datt hér allt í dúnalogn
er dömurnar fengu völdin
Og ekki heyrist agnar ögn
um aðgerðir bakvið tjöldin.
Höf.
Pétur Hraunfjörð.