UM STJÓRNARSKRÁ DJÚPRÍKISINS OG FLEIRA
16.05.2020
Útgerð fær án endurgjalds,
auðinn kvóta hylja.
Draga tauminn dýpra valds,
drekkja þjóðarvilja.
Andinn og orðan
Ýmsir þurfa á illu frest,
enda lóðrétt norður.
Hugans tómið hylja best,
hræsnisfullar orður.
Jarðneskt prjál
Að þiggja Nóbel það er vont,
þessu reisum skorðu.
Þreytt er orðið þetta mont
og þurfa fálkaorðu.
Kári