ÚT ÚR ÖNGSTRÆTINU OG Í LÝÐRÆÐISLEGAN FARVEG!
Pistillinn þinn (Tíu staðreyndir um Icesave...) og bréf Ólínu (Borgar þungaiðnaður brúsann?) hér á síðunni eru hárréttir. Niðurstaða mín er samt þessi: Það verður að samþykkja Icesave á þingi. Annnars fáum við Samfylkingu og Sjálfstæðisflokk í stjórn sem samþykkir Icesave í lítt breyttu formi og stormar síðan inn í ESB. Sú ríkisstjórn yrði verri en þessi. Vandinn er sá að núverandi ríkisstjórn segist fara frá ef Alþingi fellir Icesave. Þessi tenging er ósvífin og heimskuleg en staðreynd. Þess vegna erum við í öngstræti sem við komumst ekki út úr fyrr en málið hefur verið afgreitt á þingi og Ólafur Ragnar forseti hefur vísað málinu til þjóðarinnar. Þá er málið komið í þann lýðræðislega farveg sem það verðskuldar. Úr þessu ásaka ég engan sem samþykkir Icesave á þingi - þvert á móti er það eini skynsamlegi kosturinn einsog í pottinn er búið - en bind þeim mun meiri vonir við forsetann.
Jóhannes Jónsson