VESÆLT AÐ GRÆÐA Á VEIKUM
08.12.2013
Án efa er vesælasti kapitalismi sem til er að græða á veikum. Þetta er jafnframt gjöfulasta og auðveldasta gróðalindin. Veikir VERÐA að fá aðhlynningu og eru tilbúnir að gjalda með aleigunni ef því er að skipta. Formúlan til að virkja þessa gróðalind er einföld: Fá til valda aðila sem eru handgengnir fjármagninu, reiðubúnir að skera niður og auðvelda fjárfestum aðgang að auðlindinni - hinum sjúku. Og bingó, gróðinn er í höfn. Og nú er komin svona ríkisstjórn! Handlangarar einkaframtaksins - líka í heilbrigðisþjónustunni.
Brjóstvörnin BSRB
Um þetta hef ég skrifað ófáar greinar á liðnum árum þegar þessi hætta hefur verið yfirvofandi. BSRB var óþreytandi að veita upplýsingum inn í íslenska umræðu um ókosti markaðsvæðingar heilbrigðiskerfisins og hafa samtökin lengi verið brjóstvörn almannaþjónustunnar. (Sjá til dæmis hér:
https://www.ogmundur.is/is/greinar/hvernig-vaeri-ad-glugga-i-dahlgren
https://www.ogmundur.is/is/greinar/efnt-til-umraedu-um-einkarekstur-i-heilbrigdiskerfinu
https://www.ogmundur.is/is/greinar/psi-kroftugustu-heimssamtok-launafolks
https://www.ogmundur.is/is/greinar/heilbrigdisthjonusta-verdi-skipulogd-af-thekkingu-og-reynslu
https://www.ogmundur.is/is/greinar/varad-vid-einkavaedingu-heilbrigdisthjonustunnar
Góður fræðimaður - liðsmaður almannahagsmunaÞað er gott til þess að vita að Lilja Mósesdóttir, hagfræðingur og fyrrverandi alþingismaður, skuli vera kominn til starfa hjá Fafo, rannsóknarstofnun sem starfar í tengslum við norsku verkalýðshreyfinguna, þar sem hún meðal annars vinnur að rannsóknum á afleiðingum einkavæðingar í heilbrigðisþjónustu.
Eftrifarandi er nýjasta færsla hennar á facebook síðu hennar:
„Einkavæðing velferðarþjónustunnar er tap almennings en gróði einkaaðila! Rannsóknir á Norðurlöndunum sýna að aukin starfsemi einkaaðila í velferðarþjónustunni, þ.e. í umönnunar-, heilbrigðis- og skólaþjónustunni hefur hvorki leitt til sparnaðar fyrir ríkið né til betri þjónustu. Ríkið þarf að leggja út fyrir aukinni umsýslu vegna útboða og samninga við einkaaðila um þjónustuna. Síðan bætist við kostnaður vegna eftirlits með að einkaaðilar standi við gerða samninga og keyri reksturinn ekki í þrot. Svíar eru komnir lengst Norðurlanda í einkavæðingu velferðarþjónustunnar og hagnaður velferðarfyrirtækja í einkaeigu hefur verið meiri en annarra fyrirtækja í einkageiranum. Velferðarfyrirtækin eru yfirleitt stórfyrirtæki með aðsetur í skattaskjólum. Skattgreiðslur velferðarfyrirtækjanna eru nánast engar, þar sem eigendur þeirra hafa lánað þeim fjármagn á mjög háum vöxtum (sbr. álfyrirtækin á Íslandi). Ríkið er best til þess fallið að reka almannaþjónustuna! Að halda öðru fram er hrein hugmyndafræði." https://www.facebook.com/liljamos
Vilja græða á veikum
En hvers vegna taka þetta upp nú? Tilefnið er tilkynning þess efnis að einkavæðing heilbrigðiskerfisins sé nú að nýju komin á fullan skrið þótt hún sé tekin í áföngum. Á mbl. is í gær sagði m.a.:
„Broadway verður breytt í lækna- og heilsumiðstöð og Park Inn hótel þróast í heilsuhótel. Þetta er meðal þess sem verður kynnt á blaðamannafundi síðar í dag. Um rúmlega tveggja milljarða króna fjárfestingu er að ræða.
Á fundinum verða Ásdís Halla Bragadóttir, stjórnarformaður EVA consortium ehf. og heilbrigðisráðherra Kristján Þór Júlíusson en þau munu kynna breytingarnar sem gerðar verða á húsnæðinu.
Park Inn hótel hét áður Hótel Ísland en nýverið eignaðist Arion banki Hótel Ísland sem var dótturfélag Hótels Sögu. Er það hluti af samningum um skuldir Hótels Sögu sem er í eigu Bændasamtaka Íslands.
Sinnum, sem er í eigu EVA consortium, rekur sjúkrahótel á Park Inn en fyrirtækið fékk verkefnið eftir útboð. Samningur var gerður til tveggja ára sem unnt er að framlengja í eitt ár í senn. Sinnum sér um rekstur hótelsins, m.a. matargerð og þrif, en Landspítalinn sér um hjúkrunarþjónustuna.
Hluthafar í EVU ehf. eru Gekka ehf. sem er í eigu Ásdísar Höllu Bragadóttur og Aðalsteins Jónassonar og Flösin ehf. sem er í eigu Ástu Þórarinsdóttur og Gunnars Viðar."
http://www.mbl.is/frettir/innlent/2013/12/05/broadway_breytt_i_laeknamidstod/
Heilbrigðisráðherra, Kristján Þór Júlíusson, og Ásdís Halla Bragadóttir fjárfestir.