VG Í KRAGA MÓTMÆLIR HUGMYNDUM PÉTURS
19.09.2013
Pétur H. Blöndal, alþingismaður er kominn af stað með gamalkunnan söng, búinn að endurheimta gamalt hlutverk sitt, sem formaður nefndar sem á að enduskoða kostnaðarþátttöku almennings í heilbrigðiskerfinu.
http://ruv.is/frett/vill-heildarendurskodun-a-sjukrakostnadi
Í fréttum RÚV í kvöld sagði hann að vel kæmi til álita að láta fólk borga þegar það er lagt inn á spítala en sem kunnugt er hefur það ekki tíðkast á Íslandi. Margvísleg gjöld eru hins vegar innheimt af sjúklingum, sem sækja þjónustu í heilbrigðiskerfinu, þar með talið á sjúkrahúsum. Í nýútkominni skýrslu sem Ingimar Einarsson, sérfræðingur í heilbrigðismálum vann fyrir Krabbameinsfélagið kemur fram að gjaldtakan er komin á ískyggilegt stig eða fimmtungur af heilbrigðisútgjöldum landsmanna.Ingimar sagði í viðtölum þegar skýrslan var kunngerð að þessi þróun væri mikið áhyggjuefni. Ljóst væri að efnahagur sjúklinga muni að óbreyttu ráða æ meiru um sjúkdómsmeðferð ef ekki verði snúið af þessari óheillabraut. https://www.ogmundur.is/is/greinar/mikilvaeg-skyrsla-um-heilbrigdismal
Fram kemur í fréttaumfjöllun kvöldsins að Pétur H. Blöndal heldur sig við gamla formúlu sína um að horfa eigi á sjúklinga sem afmarkaðan hóp og að spurningin sé um að dreifa byrðunum á réttlátan hátt innan hópsins. En hvernig væri, Pétur, leyfi ég mér að spyrja, að halda hinum heilbrigðu einnig inni í menginu? Margoft hefur komið fram að Íslendingar vilja greiða fyrir heilbrigðisþjónustuna á meðan þeir eru heilir heilsu í stað þess að bíða þar til þeir verða lasnir og veikburða. Að auki er siðferðilega rétt að hinn heilbrigði greiði fyrir hinn sjúka. Þetta var og tónninn í félagsfundi VG í Kraganum í kvöld en ef dæma skal af viðtökunum þar, falla hugmyndir Péturs H. Blöndals í grýtta jörð.
Þannig ályktaði fundurinn:
Almennur félagsfundur VG í Suðvesturkjördæmi, haldinn í Kópavogi 19.
september, mótmælir harðlega fram komnum hugmyndum um gjaldtöku fyrir
legusjúklinga á sjúkrahúsum lndsins.
Fram hefur komið í nýútkominni skýrslu á vegum Krabbameinsfélags Íslands að
gjaldtaka í heilbrigðiskerfinu hafi farið stigvaxandi á undanförnum áratugum
og standi nú í 20% af heilbriðgðisútgjöldum.
Ofan af þessari öfugþróun þarf að vinda í stað þess að bæta í.
Heilbrigðisþjónustuna á að fjármagna úr almannasjóðum en ekki upp úr vösum
sjúklinga.