VG SKRIFAR FORSETA ÍSRAELSKA ÞINGSINS
Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs hefur sent forseta ísraelska þingsins, Daliu Itzik, bréf þar sem mannréttindabrotum í Palestínu af hálfu ísraelska hernámsliðsins er harðlega mótmælt, jafnframt því sem óskað er eftir liðsinni þingsins við að fá palestínska þingmenn og ráðherra, sem hafa verið hnepptir í varðhald setta lausa. Fangelsun þingmanna er táknræn um það virðingarleysi sem ísraelska ríkið sýnir lýðræðinu. Bréf þingflokks VG fylgir hér að neðan:
Þingforseti, Dalia Itzik.
Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs á Íslandi mótmælir harðlega fangelsun lýðræðislega kjörinna palestínskra þingmanna og ráðherra og óskar eftir því að forseti ísraelska þingsins beiti sér af alefli fyrir því að þeir verði þegar í stað látnir lausir. Við vekjum athygli á að fangelsun lýðræðislega kjörinna fulltrúa er táknræn um það virðingarleysi sem ísraelsk stjórnvöld sýna lýðræðinu á hernumdu svæðunum í Palestínu. Við fylgjumst með þeim alvarlegu mannréttindabrotum sem saklaust fólk í Palestínu sætir og tökum undir kröfur heimsbyggðarinnar um að þar verði þegar í stað lát á.
Aflétta verður tafarlaust umsátrinu um Gaza og láta af eyðileggingu á lífsmöguleikum fólksins. Það eru alvarleg brot á mannréttindum að svipta íbúana brýnustu nauðsynjum; vatni, raforku, matvælum og læknishjálp. Ofbeldi gagnvart saklausu fólki og lýðræðislega kjörnum fulltrúum verður að linna. Það er forsenda þess að friður verði með öllu fólki á þessum slóðum, Palestínumönnum og Ísraelum.
Fyrir hönd þingflokks VG,
Speaker og the Knesset, Ms Dalia Itzik Kadima.
The Icelandic Left-Green Movement parliamentary party strongly protests against the detention of democratically-elected Palestinian parliamentarians and ministers, and requests the Speaker of the Knesset to make all efforts to have them released immediately. We wish to point out that the detention of democratically-elected representatives is a sign of the lack of respect for democracy displayed by Israeli authorities in the occupied territories in
The siege of
On behalf of the Left-Green Movement parliamentary party