VIÐ GETUM VARIST
Sæll aftur Ögmundur og þakka fyrri svör. Það sem mér liggur á hjarta nú er Schengen samningurinn. Ég horfði á Cameron gera Breska þinginu grein fyrir synjun sinni á nýjum sáttmála ESB og hvað liggi þar á bak við og ekki sparaði hann stóru orðin um ágæti samninganna við ESB. Hann staðfesti að Bretar væru og yrðu 100% aðilar að ESB en tækju aldrei upp Evruna og ekki yrði Schengen tekið upp þar í landi þar sem stjórnvöld vildu halda þjófagengjum og ræningjum frá landinu en ekki bjóða þeim í veiðitúra þar.
Þetta eru stór orð og virðist ESB máttlaust gegn þessu þótt þeir hafi bannað Dönum tollaeftirlit undir sömu reglum?? Um næstu áramót opnast allar gáttir hér á landi vegna Schengen og hvar stöndum við þá? Með buxurnar á hælunum vegna þess að hvorki er til mannskapur hjá lögreglu til mótvægis og gæti svo farið að straujað yrði yfir okkur sbr.Úraránið á Laugavegi.
Ég tel nauðsynlegt að þetta verði endurskoðað strax og að minnsta kosti frestað um 1 ár á meðan ástandið verði metið en þetta samstarf byggist á tengingum við Interpol og eina stöðu tengiliðs þar sem er óhæft. Það er eins og allir vita til mjög fullkominn andlits þekkingarbúnaður sem kostaði yfir 100 milljónir sem mælir andlitsbein aðila á nokkrum sekundum á meðan þeir ganga frá borði og inn í flugstöðina en Persónuvernd greip inn í á sínum tíma og bannaði notkunina??
Við erum eyríki rétt eins og Bretar og ef þeir komast upp með að bjóða ESB byrginn þá getum við allt eins varist hér með því að setja aftur upp landamæraeftirlit því vegnabréfslaus komumst við ekki úr landi til útlanda. Ökuskírteini dugar ekki einu sinni í ferð til Danmerkur??
Þór Gunnlaugsson