VILL AÐ SÓLIN SKÍNI Á OFBELDIÐ
04.03.2011
Hræsnari! Þú veist vel að raunverulegu alþjóðlegu glæpasamtökin á Íslandi heita ekki Hells Angels heldur Alcoa, Rio Tinto og Century Aluminium.
Sólskin
Móttekið er bréf þitt um meinta hræsni mína. Ef búið væri að vinna þér eða þínum mein af handrukkurum myndir þú ekki tala svona. Nema þú viljir bera blak af ofbeldi og ofbeldismönnum, sem þú reyndar ert að gera.
Ögmundur