Vill friða framsóknarmann
Friðum Framsókn!! Þar sem ekki var hægt að friða Kjárahnjúka. Væri þá hægt að friða eins og einn framsóknarmann, td. Guðna Ágústsson, Sif eða Halldór. Flokkurinn er í útrýmingarhættu. Þarf ekki að taka þetta upp á þingi? Kostunaraðilar yrðu að sjálfsögðu Vís, Samskip og Ísl erfðagreining, sem sæi um klónuina. Við verðum að halda okkar þjóðlegu einkennum og gildum.
Runki frá Snotru
Þakka þér Runki fyrir þessa ábendingu. Ég verð að viðurkenna að almennt er ég því ekki fylgjandi að leita til fyrirtækja um fjármögnun eða kostun eins og það mun víst heita á fagmáli, á verkefnum á vegum hins opinbera. Vel má þó vera að það væri við hæfi í þessu tilfelli og reyndar segir mér hugur um að þessi fyrirtæki sem þú nefnir kunni að eigin frumkvæði hafa tekið fyrstu skrefin í þessu verkefni. Ekki veit ég þó hvort áhugi þeirra á kostun Framsóknarflokksins sé sprottin af ást á hinum þjóðlegu gildum sem þú nefnir svo Runki.
Kveðja,
Ögmundur