GUÐLAUGUR, GOSIÐ OG LÝÐHEILSUSTÖÐ
Mikið er það annars ánægjulegt hve áhugasamur Guðlaugur Þór, heilbrigðisráðherra, er um lýðheilsumál. Í fréttum í kvöld kom fram að sérstaklega væri honum mikið mál að styrkja Lýðheilsustöð. Ný löggjöf á döfinni þar að lútandi, starfshópar stofnaðir og bókstaflega allt á fullu. Þetta minnir mig svolítið á lúðrablásturinn á fréttamannafundunum þegar Lýðheilsustöðin var sett á laggirnar; stofnun sem á meðal annars átti – og á - að vera stjórnvöldum til ráðgjafar um lýðheilsumál. Til dæmis um skattlagningu á hollustuvörum og óhollustunni einnig. Síðasliðið vor var virðisaukaskattur og vörugjöld færð niður á matvöru. Langmest á gosdrykkjum. Lýðheilsustöð mótmælti. Guðlaugur Þór og félagar lögðu við hlustir. Ekki eftir boðskap Lýðheilsustöðvar. Þeir hlustuðu á framleiðendur og sölumenn gosdrykkja. Allt er þetta nú gleymt og grafið? Líka í minni fjölmiðla. Nema þeir hafi ekki áhuga á að muna. En heyrði ég það rétt hermt í fréttum að það væru kaupmenn sem ættu að koma meira að rekstri og stjórnun Lýðheilsustöðvar samkvæmt nýboðuðu frumvarpi? Skyldu það vera forsvarsmenn gosdrykkjaiðnaðarins?