NAUÐSYN Á UMRÆÐU UM SPILAFÍKN
Fyrir nokkrum dögum birti ég pistil hér á síðunni, þar sem spurt var hvort sama væri hvernig Háskóla Íslands væri komið í fremstu röð, sbr. HÉR. Kveikjan að pistlinum var áhrifaríkt lesendabréf frá manni, sem haldinn er spilafíkn en í bréfi sínu víkur hann orðum að þeim stofnunum í þjóðfélaginu sem gera út á spilafíknina í fjáröflunarskyni en Háskóli Íslands er sem kunnugt er ein þessara stofnana, sbr. HÉR.
Umræddur pistill um Háskóla Íslands fékk nokkra umfjöllum í fréttum og mér hafa borist bréf og fyrirspurnir, sem sum hafa birst hér á síðunni, í öðrum tilvikum hefur verið óskað eftir því sérstaklega að bréfin birtust ekki. Einnig hafa mér borist umvandanir og varnaðarorð þar sem hvatt er til hófsemi í umræðunni. Allt er þetta vel meint. Af viðbrögðum fólks úr báðum herbúðum ræð ég hins vegar hve bælt vandamál er hér á ferðinni. Fólk sem haldið er sjúklegri spilaáráttu, og þá ekki síður aðstandendur þeirra, vilja umræðu um vandann, þótt þeir eigi illmögulegt að taka þátt í henni; þeir sem fá afraksturinn í vasann vilja helst að um vandann sé þagað.
Háskóli Íslands og líknar- og hjálparstofnanir á borð við Rauða kross Íslands, Landsbjörg og SÁÁ, sem hagnast á spilavítisélum, verða að axla ábyrgð í þessu efni og það gera þau á þann hátt einan að segja sig algerlega frá fjáröflun af þessu tagi.
Augljóst er að það ætlar að reynast þessum aðilum þrautin þyngri. Í reynd eru það tveir aðilar sem háðir eru spilafíkninni: Sá sem spilar og hinn sem hagnast á sjúkleika hans. Að sumu leyti er síðara hlutskiptið dapurlegra.
Ég hef verið beðinn um að vísa á fyrri skrif mín um þetta efni. Hægt er að slá upp leitarorði hér á síðunni – í þessu tilviki er orðið spilafikn - og koma þá fram þær greinar sem birst hafa hin síðari ár um þetta efni, eftir að ég opnaði þessa heimasíðu, að því tilskyldu að sjálfsögðu að orðið spilafíkn komi fyrir í skrifunum.
Hér má finna hluta af þessum skrifum. Listinn er ekki tæmandi.
https://www.ogmundur.is/is/greinar/sidfraedistofnun-fai-hlemm
https://www.ogmundur.is/is/greinar/mikilvaeg-umraeda-um-spilafikn
https://www.ogmundur.is/is/greinar/morgunbladid-a-lof-skilid-fyrir-umfjollun-um-spilafikn
https://www.ogmundur.is/is/greinar/er-verid-ad-venja-bornin-vid
https://www.ogmundur.is/is/greinar/hvatt-til-abyrgrar-afstodu-gegn-spilafikn
https://www.ogmundur.is/is/greinar/burt-med-spilakassana
https://www.ogmundur.is/is/greinar/hver-er-afstada-domsmalaradherra-til-spilavita
https://www.ogmundur.is/is/greinar/samraemt-atak-gegn-spilafikn
https://www.ogmundur.is/is/greinar/tharf-frekar-vitnanna-vid
https://www.ogmundur.is/is/greinar/spilafiklar-eru-venjulegir-islendingar
https://www.ogmundur.is/is/greinar/tveir-hadir-spilafikn-a-hvorn-a-ad-hlusta
https://www.ogmundur.is/is/greinar/raudi-kross-noregs-axlar-abyrgd-gagnvart-spilafikn
https://www.ogmundur.is/is/greinar/ahrifarikt-bref-um-spilakassa-a-sidunni
https://www.ogmundur.is/is/greinar/er-haegt-ad-banna-spilakassa
https://www.ogmundur.is/is/greinar/hvers-a-hagfraedistofnun-ad-gjalda