06.01.2004
Ögmundur Jónasson
Sæll Ögmundur. Ég vil byrja á að hrósa þér fyrir að taka strax afstöðu gegn hinu umdeilda frumvarpi um eftirlaun ráðherra og hækkun til formanna þingflokka stjórnarandstöðu. Ég get ekki skilið af hverju þingmenn þurfa betri eftirlaun en aðrir í þjóðfélaginu, eða þeir þurfi að vera betur tryggðir heldur en aðrir ef þeir missa þingsæti komnir á efri ár. Þetta er að gerast á hverjum degi út í þjóðfélaginu. Annars held ég að það sem hafi farið einna verst í fólk er sú hækkun sem formenn stjórnarandstöðuflokkanna upp á 240 þúsund Gera menn sér ekki grein fyrir því að almenn dagvinnulaun í landinu eru á bilinu frá 95 - 120 þúsund á mán.? Mér finnst þetta frumvarp sýna að meirihluti þingmanna er ekki í sambandi við almúgann. Það vakti líka athygli að ekki var hægt að ná í formenn VG eða Samfylk.