Hr. Ögmundur. Skv. RÚV er LSH ríkisforstjórinn í ríkisstjórninni sem þú styður alveg vinstri/hægri í viðjum steinrunnins vana þíns, nú kominn með 2,8 milljónir í laun á mánuði.
Í vikunni hækkaði velferðarráðherra laun forstjóra Landspítalans um nærri hálfa milljón á mánuði. Ef marka má fjölmiðla var rótin að þessari aðgerði sú að forstjórinn gat að eigin sögn fengið meiri pening fyrir vinnu sína annarsstaðar og ráðherrann vildi sýna þá snerpu að kippa þessu í liðinn með því að jafna besta boð erlendis frá.
Komdu sæll ! Hvernig stendur á því að Kínverjar hafa fengið að kaupa jörð í Þingeyjarsýslu, rétt sisona? Væri ekki rétt að banna allar jarðarsölur til útlendinga hvaða nafni sem þeir nefnast.Hvers eiga afkomendur okkar að gjalda? Spyr sá sem ekki veit.
Spurningin er: Er til fullkomin aðferð við ráðningu starfsmanna, til að meta kosti umsækjanda, þegar velja skal fólk í stöður hjá því opinbera, verður tilfinningin ekki einnig að ráða? Er það jafnrétti að velja eftir kyni þegar karl og kona eru jöfn samkvæmt einhverri forskrift?.
Sæll Ögmundur. Nú er svo komið að ég og mínir eru mikið sjálfstæðisfólk.. Mæli ég fyrir munn okkar flestra að við stöndum með þér fram í rauðan dauðann.
Sæll Ögmundur. Af hverju geta ekki öfgafemínistarnir skilið það að jafnréttí eiga að vera sjálfsögð mannréttindi, óháð kynferði? Það að mismuna út frá kynferði, svokölluð "jákvæð mismunun" brýtur gegn almennum mannréttindalögum og einnig gegn 65.
Úrskurður nefndar getur aldrei verið ígildi dóms. Enginn hefur brotið lög fyrr en dómur um liggur fyrir. Að skipa lögum með öðrum hætti stenst ekki stjórnarskrá.Það er óheimilt að framselja dómsvald.