Vegna myndar, þar sem Geir Haarde og Ingibjörg Sólrún kysstust innilega þegar þau voru að mynda Viðhaldið, varð þessi vísa til.. Guðni fékk að kyssa kýr,og kætast meðal svína.Geir þarf ekki önnur dýren Ingibjörgu sína.Kveðja,Kristján Hreinsson
Sæll Ögmundur. Björn heiti ég og hef verið mikill stuðningsmaður Vinstri grænna og virkur kjósandi flokksins síðan ég fékk kosningarétt minn.Ég vil bara senda þér stutta línu um grein þína í Morgunblaðinu varðandi tölvuleikinn RapeLay og lagasetningu um kynferðislega glæpi á netinu.
Í fyrndinni var til lýðræðiskynslóð í Alþýðubandalaginu. Lýðræði var það sem sú kynslóð vildi sjálf kenna sig við, og notaði til að aðgreina sig frá ASÍ-arminum, Svavars-arminum, eða öðrum sem þá þóttu standa í vegi fyrir framsókn umbótaaflanna í flokknum.
Guðni Ágústsson, fyrrverandi ráðherra og núverandi formaður Framsóknarflokksins, sagðist í síðustu vikur vera ánægður með að losna úr amstri stjórnarinnar og sagðist nú vera búinn að taka útúr sér beislið og laus nið hnakkinn. Vart það hneykslar hérlent pakkþótt heimskur Guðni þeysimeð ekkert beisli, engan hnakkog algjört stefnuleysi. Kveðja,Kristján Hreinsson
Þegar Blair og Bush koma saman fram til að verja Íraksstríðið, svo dæmi sé tekið. Þá taka þeir ganginn, eins og sagt er í Ameríku, – ganga ákveðnum skrefum eftir rauðum dregli í takt og stilla sér svo upp við þar til gerð púlt í húsi, sem ber sama nafn og auglýsingastofa sem kom við sögu þegar hugtakið “skítlegt eðli” heyrðist fyrst við Austurvöll fyrir sextán árum.