Nú Mílu þeir munu víst selja með öllum tækjum og tólum Og aurana svo auðvitað telja í öruggum skattaskjólum. Sáttmálann nú sitja við Bjarni. Siggi. og Kata En velferð alla vilja á bið verma stóla og plata. ... Höf. Pétur Hraunfjörð.
Skila rauðu skaltu nú í skjaldborgina teljum Verkalýðsins virkjum trú viðreisnina hefjum. Lífsins basli þeir vilja létta og lélegu kerfi upp í hrista Alþýðan mætti athuga þetta að kjósa Sósíalista. Höf. Pétur Hraunfjörð.
Nú kjörtímabilið er klárlega búið kófsveittir akta á bæði borð En samstarfið var jú lélegt og lúið lítið heyrðust trúverðug orð. Í frjálshyggjunni ei frelsi sést flokksmenn snúa til varna En væri ekki lang lang best að leiða í burtu Bjarna? ... Höf. Pétur Hraunfjörð
Nú sósíalistar setjast á þing Sjálfstæðis flokks að gæta Með alþýðu nú Nallann syng úr neyðinni vaskir bæta.
Hér svik og lygi sitt á hvað sjáum nú alla daga í September við sjáum það hverjir sultarkjörin laga. Í lífsins skóla lærði fljótt að loforð frambjóðenda Lifðu alls ekki eina nótt á lygina vildi benda. ... Höf. Pétur Hraunfjörð
Óli Björn gerir grín að sósíalisma – „Kastró er ekki búinn að vera fimm mínútur í helvíti og við erum þegar byrjaðir að fá flóttamenn“. Ég man Þegar Íhaldið sá um fjármálaráðuneytið 2008 og Gerði Ísland GJALDÞROTA. Almenningur missti húsnæði og vinnu og FLÚÐI land! Brandara kallinn Óli Björn baunar á sósialisma Virðist í frjálshyggju vörn hatar víst komonista. Sósíalistum ég sendi hug saman hafið valdið Með samstöðunni sýnið dug sækið á auðvaldið. Ráðherraliðið rauk nú austur í rólegheita kjaftalotu En fáránlegur var fjáraustur fóru víst í einkaþotu. ... Höf. Pétur Hraunfjörð.