Fara í efni

Frá lesendum

MEGHAN

Grátklökk hún gat ekki andað greiðleg svör og mikið vandað sagði of mikið fór yfir strikið en miljónum fyrir vikið landað. Sannleika ´ann sjálfsagt kann Þótt sjálfur ekki noti hann Við þekkjum öll manninn þann Þar ósvifnasta náungann. ... Höf. Pétur Hraunfjörð.

Í SÍMANUM

Í símtalinu sagði Arna sinni meiningu frá Hún vildi hvítþvo Bjarna af sakaskrá. Eftir framsal á fiskveiðikvóta fóru sægreifar lífsins að njóta kvóti var efldur á örfáar hendur og allir samþykktu leikinn ljóta. ... Höf. Pétur Hraunfjörð.

SAKLAUSA SÍMTALIÐ

Greiðan hún vildi gjalda gekk því bent til varna Hann kom henni til valda hún á allt undir Bjarna. Bankasölu nú Bjarni þráir Þó bæti lítið okkar hag Engeyingarnir hér eru fáir en græðgi þeirra fag. Honum liggur lífið á ljóta hefur þanka Sviksemina allir sjá selur Íslandsbanka.   ... Höf. Pétur Hraunfjörð.

VIÐ MUNUM HRUNIÐ

Nú eignast elítan bankana senn enda kaldrifjaðir kaupsýlumenn áfallið munið þjóðarhrunið öll alþýðan hérna man þetta enn. Aumur gerist Andrés minn allir heim rata Verður því þarna um sinn þingmaður pírata? ... Höf. Pétur Hraunfjörð.

HVAÐ ER ÞJÓÐAREIGN?

Svarið núna set á blað, sannan vanda leysum. Þjóðareignin þýðir að, þjófum skorðu reisum. Þjóðarklafa þekkið smið, þing til grafar tryggja. Kvótahafar keppast við, kreppugjafir þiggja. Kári

GRÍMUBALLIÐ Á ENDA

Grímulaust í gegnum árin gróðans ennþá njóta í samfélaginu blæða sárin undan sjálfseignarkvóta. Bankasölu nú Bjarni þráir Þó bæti lítið okkar hag Engeyingarnir hér eru fáir en græðgi þeirra fag. ... Höf. Pétur Hraunfjörð.

SÁ ÉG ÞJÓFA

Sá ég þjófa, bankabófa, braskið prófa, leita hófa. Því, því, því, því. Aftur spilling enn á ný. Kári

SAMAN ÞÁ STÖNDUM

Eftir níu mánuði megum við kjósa framfærsluna múgurinn sér óljósa saman þá stöndum valið þar vöndum ég frjálshyggjunni alls ekki hrósa. Höf. Pétur Hraunfjörð.  

HVÍSLAÐ TIL AÐ SÝNAST?

... Ég las grein þína um kjarnorkuvopnin og fór á slóðina sem þú gafst inn á ræðu þína í þinginu um NATÓ og “öryggisstefnu” Íslands. Mikið vildi ég að þó ekki væri nema ein rödd á Alþingi sem talaði eins og þú gerðir en það er ENGINN þingmaður sem það gerir. Er að undra að fólk missi trúna á þinginu og þeim sem þar sitja í umboði vinstri stefnu! Ef gagnrýni er hreyft á NATÓ þá er það lágvært hvísl til að sýnast! Runólfur

RÁÐHERRA FÆR MERKI UM BANKARÁN

Kosningarnar koma hér, kanntu fléttu snúna? Bankasýslan býður þér, að byrja ránið núna. Kári