24.04.2003
Jón Karl Stefánsson
Veruleiki okkar er að miklu leyti ákvarðaður af fólki sem á eða hefur völd yfir miklu fé. Þrátt fyrir að lýðræðislegar stofnanir eins og Alþingi og sveitarstjórnir hafa sjálfar mikið vald eru margar mikilvægustu ákvarðanir sem snerta almenning teknar á lokuðum fundum, handan afskipta þess. Nú er til að mynda orðið ljóst að Búnaðarbankinn og Kaupþing hafa ákveðið að sameinast svo úr verður einhver mesta samþjöppun valds og fjármuna í íslenskri sögu. Þessa ákvörðun tóku menn sem munu græða mikið á þessum samruna og ljóst er að ef samkeppni hefur í raun ríkt á fjármálamarkaðnum getur þessi nýi risi nú drottnað í lánaviðskiptum á Íslandi. Hópur innan Kaupþings og Búnaðarbankans hefur þegar sýnt tilburði í þá átt að vilja eigna sér sparisjóðina. Til að nefna annað mál sem skiptir alla Íslendinga máli en aðeins fáir ráða er vert að minna á þátt Burðaráss ehf.