Fara í efni

Greinasafn - Frá lesendum

Maí 2012

AUGLJÓS ÁFORM KÍNVERJA

Mér þóttu góðar hugvekjurnar ykkar Einars Benediktssonar um landvinningastefnu Kínverja og dæmalausar yfirlýsingar Núbós um tryggan 99ára leigusamning.

TRYGGJA ÞARF SJÁLFBÆRA FERÐAMENNSKU

Sæll, Margir áfangastaðir eru nú ofsetnir ferðamönnum svo sér á umhverfinu. Tekjur aukast ekki að sama skapi samkvæmt fréttum frá í október í fyrra.

FREKAR FÁTÆKARI EN AÐ LÁTA SKEMMA FYRIR OKKUR LANDIÐ

Hvernig stenst það að kínverji sem er að leita að óbyggðum, útsýni og kyrrð vill byggja alþjóðaflugvöll og ofurstórt hótel?? og ef hann stofnar fyritæki um leigusamninginn - hverjum selur hann fyrirtækið ?? Hvers vegna má ekki bara segja NEI við Nubo ?? Við Íslendingar viljum frekar vera 860 milljónum fátækari en að fá 860 milljón kínverja til að skemma okkar viðkvæma land....... Gréta Adolfsdóttir

MÁLIÐ KEMUR ÖLLUM ÍSLENDINGUM VIÐ

Af hverju kom mer allt i einu Sturla Þórðason i hug þegar ég sá Halldor Jóhannsson tala um áform Huang Nubo a Íslandi? Erum við ad komast i nýja Sturlungaöld, thar sem Kínverjar koma i stað norrænna konunga til ad ráða yfir okkur? Við ættum ad geta hugsað þetta mál til enda sem þjóð, áður en of seint verðr.

LÖGGJAFINN GETUR HAFT HÖND Í BAGGA

Eitt ráðið er að banna að það verði byggt alþjóðaflugvöll á Grímstöðum. Ef um alþjóða-flug verður að ræða þarf það að fara um Egilstaðaflugvöll.

BARNALEGUR OG HEIMSKULEGUR

Skrifar þú Ögmundur virkilega svona barnalega? Talar um skítuga skó og Ísland sem "hráefnanýlendu" vegna Grímsstaðamálsins.

FJÖLMIÐLAR SKOÐI

Hvað segja þingeyskir samkeppnisaðilar í hótelrekstri um aðkomu Kínverjanna á Fjöllum? Stendur ekki til að veita þeim skattalega ívilnun? Ef svo er þá er hún á kostnað samkeppnisaðila.

VIÐ EIGUM RÉTT Á UPPLÝSTRI UMRÆÐU

Íslendingar eiga heimtingu á upplýstri umræðu um fyrirhugaðar stórframkvæmdir á Grímsstöðum á Fjöllum. Ögmundur þú stendur þig vel í þessu máli sem öðrum - samkvæmur sjálfum þér.. Það hlýtur að vera öllu sæmilega vitibornu fólki mikið umhugsunarefni hvað á að ganga langt í að lofa erlendum aðilum að komast á einn eða annan máta yfir landið okkar.

SPURT UM STEFNU

Sæll Ögmundur. Hræsni Samfylkingarinnar er söm við sig í kvótamálinu og Grímsstaðaævintýri þeirra og Nubos: Ef Nubo fær Grímsstaði til 40 eða 99 ára nýtingarréttar, mun það sama þá gilda um kvótagreifana???? Hver er eiginlega hin lagalega stefna Samfylkingarinnar, að maður minnist nú ekki á hina framkvæmdalegu, pólitísku og siðrænu???? Svo má vitaskuld, eins og þú veist manna best, einnig spyrja Steingrím simmsalabimm ráðherra og hirð hans þess sama.

NÝ TÆKIFÆRI MEÐ MENNTUN

Ég er svo hjartanlega sammála Ögmundi, varðandi Grímstaðamálið. Við þurfum að nýta betur það sem við höfum.Ég gerði tilraun með að byrja að kenna börnum mínum 3 mánaða gömlum.