Já, það er merkilegt hvað fólk getur þroskast illa með aldrinum eins og fram kemur í bréfi Sunnu Söru um gamla Keflavíkur-göngugarpinn okkar hana Ingibjörgu Sólrúnu utanríkisráðherra.
Vefmiðillinn Andríki er ekki sá miðill sem ég samsama mig við. En svoldið skondin fannst mér þessi tilvitnun þaðan sem barst inn á minn skjá í dag: :"Fyrir nokkrum áratugum gekk Ingibjörg Sólrún Gísladóttir Keflavíkurveginn á tveimur jafnfljótum til að mótmæla aðild Íslands að NATO.
Geir H. Harde, forsætisráðherra, bregst önugur við gagnrýni um að hann og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, skuli nota skattpeninga okkar til að leigja undir sig einkaþotu á NATÓ fund í Rúmeníu.
Er það ekki verkefni stjórnmála að fjalla um kerfi sem leyfir að menn verði milljarðamæringar á því að valda þjóðfélagslegum skaða? Ríkisstjórnin ætti að vera fjalla um kerfið um stjórnmálin, en er að fjalla um daglegar reddingar.