16.03.2008
Ögmundur Jónasson
Sæll Ögmundur.... Í morgun var hringt í mig að utan og mér sagt að upp hafi komist um hroðalegt glæpamál í Las Vegas í Nevada, Bandaríkjunum.. Svo er mál með vexti, að einkafyrirtæki þar, sem hefur það verkefni með höndum að bólusetja fólk og taka blóðprufur úr því, var staðið að því að nota sömu nálarnar aftur og aftur, í stað þess að nota ætíð nýjar innpakkaðar sótthreinar nálar eins og lög segja til um. Eins og gengur og gerist í þessum einkavæðingar- villimannaheimi einkagræðginnar, þá ver umrætt fyrirtæki lægstbjóðandi í verkið en ætlaði að ná inn gróða með því að spara hér og þar á kostnað "sjúklinganna" eða fórnarlambanna.