Sæll Ögmundur .. Ég vil fyrst byrja á að þakka þér fyrir svör við ummælum Reinfeld forsætisráðherra Svía um að þeir hafi tekið að sér handrukkun því ummæli hans voru nákvæmlega þannig og ekki batnar að sjá á Bloomberg fréttaveitunni að við mætum kulda við að hrófla við samningunum frá Hollendingum og Bretum.
Frábært hjá þér að taka Fredrik Reinfeldt í nefið, þetta eru ekki vinir okkar. Ískendingar þurfa að koma þeim skilaboðum til Norðurlandaþjóðanna mikið fastar og betur.
Sæll Ögmundur. Í grein í Fr.bl.14.jan.2010 skrifar Sigurður Líndal um Icesave málið. Hann undrast eins og flestir Íslendingar hvað valdi síendurtekinni yfirlýsingagleði "Norðurlandahöfðingja" um að "Íslendingar eigi að standa við skuldbindingar sínar" án þess þó að þeir útskýri af hverju.
Sæll Ögmundur..... Þau eru ömurleg bréfin Péturs og Kristjóns á vefsíðu þinni. Báðir aðskilja þeir ekki þjóð og ríkisstjórn þegar um er að ræða Svía og hvorugir virðast skilja að það er djúp gjá á milli íslensku þjóðarinnar og íslenskra einstaklinga sem athafna sig í útlöndum og hafa stórskaðað íslensku þjóðina með lygum, þjófnaði og undirferlum.
Sæll, Þakka þér einarða afstöðu í Ísbjargarmálinu. Skyldi sænskur almenningur vita að sænsk stjórnvöld eru handrukkarar alþjóðlegrar fjáreigendaklíku? Fáir ef nokkur hefur komið oftar á Bildeberg-samkundur en Carl Bildt.
Til að skilja til fullnustu,hvers vegna Bretar og Hollendingar eru svo grimmir gagnvart Íslendingum, er áhugavert að skoða þetta Webcast: http://www.larouchepac.com/media/2008/05/07/tragedy-hope-may-7th-larouche-webcast.html Það sýnir í hnotskurn við hvað er verið að eiga fyrir Ísland í dag.
Er ekki komin tími til að láta af þessum einstrengingshætti og viðurkenna að sök okkar Íslendinga felst í því að hafa látið líðast það ábyrgðarleysi sem stjórnvöld hafa viðhaft árum og áratugum saman.
Sæll Ögmundur.. Þakka þér fyrir greiningu þína á lýðræði og forræði. Þessi umræða er ákaflega mikilvæg og hefði mátt verða fyrirferðarmeiri þá 18 mánuði sem liðnir eru frá efnahagshruninu.