Fara í efni

Frá lesendum

ÆTLIÐ ÞIÐ AÐ ÞOLA LANDSVIRKJUN YFIRGANGINN?

Sæll Ögmundur .. Eins og þú veist þá vill Landsvirkjun eyðileggja Þjórsá með virkjunum og hefur rétt okkur sveitamönnunum sleikibrjóstsykur að ekki eigi að selja orkuna til álvera.

HVERRA ERU REGLURNAR?

Sæll Ögmundur. Hér að neðan eru þrjár tilvitnanir af http://visir.is/section/FRONTPAGE.  Þær eru valdar af handahófi og eru svona: "Afskrifa þarf líklega um fjögurra milljarða króna skuld félags í eigu Ármanns Þorvaldssonar, fyrrverandi forstjóra Singer & Friedlander.

VIRÐA BER ÞJÓÐARVILJANN

Ár munu líða og aldir renna. Sá tími mun koma að einu gildir hvað íslenskur pólitíkus sagði á Alþingi 2010.

UM HEIMSFRELSUN

Ég las grein Indriða á Smugunni áðan (http://www.smugan.is/pistlar/fastir-pennar/nr/2918 ). Greinin minnti mig á viðtal við Svavar í Speglinum í vor sem leið þegar hann kom heim og útskýrði fyrir þjóðinni að þeir sem hefðu lagt peninga inn á Icesave reikninga væru gott fólk og heiðarlegt.

KLÓNAR

Sæll Ögmundur.. Þakka þér fyrir að taka áfengisauglýsingar til umræðu á Alþingi. Einhverjum kann að finnast þú skjóta föstum skotum að Ríkisútvarpinu, mér finnst eins og þú gefir á þá lausan bolta, en af hverju segi ég það? Ég segi það vegna þess að að vinsælir þættir; dæmi - danski þátturinn Klovn - er kostaður af Tuborg fyrirtækinu, eða af þeim sem selja Tuborginn hér á landi.

ILLSKEYTT ÁRÁS

Sæll Ögmundur. 23. mars segir þú frá skrifum Indriða Þorlákssonar á Smugunni frá deginum áður. Eftir að ég las greinina fór ég að velta tvennu fyrir mér.

FULLKOMIÐ ÁBYRGÐARLEYSI

Blessaður Ögmundur.. Þúsundir urðu fyrir óþægindum þegar Icelandair flugfélagið neitaði að koma til móts við kröfur flugvirkja.

BARA EKKI NÚNA...

Ég verð að segja eins og er að fólki er frjálst að hafa skoðanir, en þær verða þá að vera sanngjarnar og fólk fái að tjá sig á báða bóga um viðkomandi mál og málefni.

VARAÐ VIÐ ANDSTÖÐUGLEÐI

Vita þykist ég um lágstemmdan almennan áhuga ykkar þingmanna um virkjana- og álversframkvæmdir hér á landi. Helst þykir mér það hafa sýnt sig í því alræðisvaldi sem yfirstýra umhverfismála í ríkisstjórninni hefur tekið sér.

SJÁLFSTÆÐISMENN

Sæll Ögmundur.. Hverjir settu sig jafnan upp á móti hertu skattaeftirliti? Sjálfstæðismenn.. Hverjir bjuggu til regluverkið í viðskiptalífinu? Sjálfstæðismenn.. Hverjir stjórnuðu sölu bankanna? Sjálfstæðismenn.. Hver flutti magnaða ræðu um skattamál hjá lögfræðingum og endurskoðendum 2004? Davíð Oddsson.. Hverjir ráða Samtökum atvinnulífsins? Sjálfstæðismenn.. Hverjir ráða Viðskiptaráði? Sjálfstæðismenn.. Hverjir ráða heildsalasamtökunum? Sjálfstæðismenn.. Hver var með forsætis - og utanríkisráðherra í Prag haustið 2002? Ólafur Stephensen.. Hverjir stjórna Fréttablaðinu? Sjálfstæðismenn.. Hverjir stjórnar Morgunblaðinu? Sjálfstæðismenn.. Hverjir stjórna LÍÚ? Sjálfstæðismenn.. Hverjir vilja einkavæða sameiginlegar auðlindir þjóðarinnar? Sjálfstæðismenn.. Hverjir eyðilögðu ríkisútvarpið? Sjálfstæðismenn.. Hverjir bera ábyrgðina á sukkinu í Miðnesheiðinni? Sjálfstæðismenn.. Hverjir fengu flest kúlulánin? Sjálfstæðismenn.. Hverjir fá mestu niðurfellingu skulda? Sjálfstæðismenn.. Hverjir vilja að ríkisstjórnin fari frá völdum strax? Sjálfstæðismenn.. Hverjir telja sig verða að vera við völd? Sjálfstæðismenn.. Af hverju vill Sjálfstæðisflokkurinn ná völdum á ný? Sjá svörin hér að ofan.. Og hvað svo?. Bestu kveðjur,. Hafsteinn. . Þakka bréfið Hafsteinn.