Sæll Ögmundur! . Ég var að lesa innlegg frá Halldóri Á. varðandi spilafíkn og svarið frá þér. Innleggið minnti mig ansi mikið á Hannes nokkurn Hólmstein sem sagði að það væru alltaf einhverjir sem yrðu undir í frjálshyggjuþjóðfélagi og þess vegna væri svo mikilvægt að þeir sem væru ríkir gætu orðið ríkari svo hægt væri að hjálpa þeim sem hefðu orðið undir.
Þakka þér fyrir málefnalega og góða framsetningu á málefnum Álftnesinga á vefsíðunni. Áform þín um að taka upp umræðu um vanda sveitarfélaga á Alþingi eru vissulega tímabær og ánægjulegt til þess að hugsa ef það megnar að slá á þá frasakenndu fordæmingu sem hefur dunið á Sveitarfélaginu Álftanes frá því í ágúst á liðnu ári.
Komdu sæll Ögmundur.. Fín er síðan þín og ötull ertu við skriftirnar. Takk fyrir það. Sammála er ég þér um furðulegheitin í stjórnmálunum á Íslandi nú um stundir.
Heill og sæll Ögmundur.. Inni á Eyjunni fann ég bloggfærsluna þína sem geymir varnaðarorðin um að forðast dómhörku og þakka þér kærlega fyrir orð þín í henni.
Þórólfur Mattíasson er afsprengi þeirrar hugmyndafræði að öllu sé til þess fórnandi að ganga inn í ESB. Íslendingar þurfa uppgjör, út með spillinguna, stjórnlagaþing og nýja stjórnarskrá.
Erum við eitt, Ögmundur, þú og ég? Allavega gæti maður haldið það þegar maður les skrif hins hámenntaða prófessors, Þórólfs Matthíassonar þar sem hann lætur að því liggja að þú hafir skrifað bréf sem ég skrifaði og sendi inn á síðuna þína undir eigin nafni.