HÁRRÉTT HJÁ FORSETA ASÍ
11.02.2022
... "Það eru stef í samfélaginu sem minna óneitanlega á aðdraganda hrunsins; bankasala og ofurbónusar og í viðskiptafréttum má lesa um áhyggjur af því að að fyrirtæki erlendis séu að bera víurnar í okkar afburða viðskiptasnillinga og því þurfi þeir hærri laun og meiri bónusa ... Önnur kunnugleg stef frá því fyrir hrun eru hugmyndir um að láta fjármagnseigendur í auknum mæli stýra velferðarþjónustu, nú heitir þetta: „Það skiptir ekki máli hver veitir þjónustuna“. Jú það skiptir máli..." Hér er skýr og afdráttarlaus rödd, varnaðarorð, sem stjórnvöldum ber að hlusta á, reyndar ekki bara stjórnvöldum heldur samfélaginu öllu! ...