Sæll Ögmundur.. Nú er alltof langt síðan ég skrifaði þessari ágætu síðu bréf. Best að breyta því nú. Það er hlutverk sósíalista og annars vinstra fólks að tala fyrir hlut minnihlutahópa.
DV.IS slær í dag upp herhvöt Þorleifs Gunnlaugssonar, fyrrum borgarfulltrúa í Reykjavík, til fjölmiðla og verkalýðshreyfingar um að herða róðurinn í þágu atvinnulausra.
Í Bylgjuspjalli okkar Brynjars Níelssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, í morgun bar margt á dóma, þar á meðal orðuveitingar og síðan furðulegar yfirlýsingar formanns og varaformanns fjárlaganefndar Alþingis um niðurskurð og kröfur um hagræðingu hjá hinu opinbera.
Þakka þér fyrir grein þína um Icesave hér á síðunni. Því má bæta við að vextirnir sem við hefðum greitt af Icesave hefðu verið í erlendum gjaldeyri, sem við áttum ekki til og eigum ekki enn!. H.J.
Jólin eru kærkomið tækifæri til að vera samvistum með vinum og fjölskyldu, slaka á, lesa góðar bækur, hreyfa sig eða hreyfa sig ekki, gera nákvæmlega það sem hugur hvers og eins stendur til.