Sæll Ögmundur. Áframhaldandi velsæld og öryggi er rauði þráðurinn í þeirri tálsýn sem Sjálfstæðisflokkurinn heldur að kjósendum í kosningaauglýsingum sínum.
Að sjálfsögðu las ég grein Magnúsar Stefánssonar alþingismanns í Morgunblaðinu í morgun en hann gerir mér þann heiður að setja nafn mitt í fyrirsögn hennar.
Í pistli sem er mjög við hæfi að birta 1.maí, á baráttudegi verkalýðsins, veltir Ólína fyrir sér (sjá Spurt og svarað hér á síðunni) samhenginu á milli skattatillagna Sjálfsæðisflokksins og fyrirsjáanlegra útgjaldaaukningar heimilanna.
Ræða Ögmundar Jónassonar á fundi trúnaðarmanna SFR og St.Rv. 29. apríl 2003 Góðir félagar í BSRB. Það er mér mikið ánægjuefni að ávarpa þennan glæsilega fund trúnaðarmanna SFR og Starfsmannafélags Reykjavíkur.
Blessaður Ögmundur. Ég þakka hlý orð í minn garð. Kosningabaráttan er hrein skemmtun að verða finnst mér. Á dögunum var til dæmis sett upp sýning á gömlum áróðurspésum og slagorðum og vekur þar hvað mesta athygli bláa höndin.
Kæru vinir. Skrifa nokkrar línur frá Ramallah á síðasta degi þessarar ferðar. Aðstæður eru mjög erfiðar og ómögulegt að komast á alla þá staði sem maður ætlar sér vegna ótrúlegrar uppfinningasemi hernámsliðsins í að hindra fólk í að komast leiðar sinnar.
Nýjasta nýtt frá Írak er að frelsurunum sem sögðust vera að frelsa kúgaða Íraka og boða þeim lýðræði og mundu síðan hverfa til síns heima hefur nú snúist hugur - þó marga kunnuga hafi alltaf grunað að ætlanir innrásaraðilana hafi aldrei verið jafn göfugar og þeir reyndu að ljúga til um.
Birtist í Mbl. 28.04.2003Keflavíkurflugvöllur er stærsta hliðið að landi okkar. Vinstrihreyfingin grænt framboð hefur alla tíð lagt áherslu á að þessi mikilvægi hluti af samgöngukerfi þjóðarinnar verði í almannaeign og lúti almannastjórn.
Ég sé ekki betur en síðan þín sé að verða ein sú alfjörugusta. Ég vil þakka þér fyrir þínar greinar en einnig finnst mér mjög góðar greinar sem birtast á síðunni undir Frjálsum pennum og fjölmiðlagagnrýni og sum lesendabréfin eru mjög góð og greinilega góðir pennar þar á ferð þótt ekki séu þeir allir auðkennanlegir.