Ég hlustaði á ykkur Brynjar Níelsson á Bylgjunni ræða eignarhald á landi. Brynjar kvaðst ekki sjá að það skipti nokkru máli hver ætti landið! Ég er hins vegar sammála þér þegar þú bendir á muninn á því þegar útgerðarmaðurinn átti heima í útgerðarplássinu annars vegar eða í lúxúsvillu utan plássins hins vegar.
Þorvaldur Gylfason, prófessor, sendir mér tóninn í skrifum á vefmiðli DV. Ég á að hafa óvirt Evu Joly í kveðjuhófi, sem hún hélt eftir vel unnin störf hér á landi.
Í þættinum Í BÍTIÐ á Bylgjunni í morgun kvaðst Brynjar Níelsson, alþingismaður, efast um að ég færi með rétt mál þegar ég staðhæfði að víða um lönd þætti það, í sífellt ríkari mæli, vera eftirsóknarverður kostur að fjárfesta í landi.
Birtist í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins 28.07.13.. Árið eitt þúsund var Þorgeiri Ljósvetningagoða Þorkelssyni falið að finna lausn á deilum kristinna manna og heiðinna á Íslandi.
Góðan dag Ögmundur.. Seðlabanki Íslands er enn og aftur í sviðsljósinu vegna gjaldeyrishaftanna sem eru að knésetja þjóðina með rangri gengisskráningu og fleiru.
Svokölluð matsfyrirtæki eru rammpólitískar stofnanir sem reynslan kennir að stilli sér upp hverju sinni þar sem þau telja að verja þurfi hagsmuni fjármagnsins gegn almannahagsmunum.
Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins, hvetur ríkisstjórnina til að kalla Alþingi saman til að fella úr gildi ákvörðun Kjararáðs um laun forstjóra hjá ríkinu.
Birtist í DV 26.07.13.. Í Landsbankanum hefur gengið á með hamingjuóskum undanfarna daga. Ekki að undra kann einhver að segja því tilkynnt var að starfsmenn væru í þann veginn að eignast ígildi nokkurra milljarða í bankanum. Eins og fram hefur komið í fréttum fá starfsmennirnir greitt hlutfallslega í samræmi við laun sín.