Sæll.Ég var að lesa pistil þinn um hjálparaðstoðina. Ríkisstjórnin sem virtist virtist miða sig við Pokasjóð hefði sennilega aldrei hækkað framlag sitt ef VG hefði ekki látið í sér heyra og þannig komið áleiðis reiði fjölda fólks yfir þessari smánarlegu upphæð.Davíð hélt því fram að þetta hefði bara verið nokkurs konar "fyrsta hjálp" en svo hefði komið í ljós að umfangið hefði verið miklu meira - miklu fleiri látnir en áður var haldið.
Skömmu eftir að jarðskjálftinn mikli í Suðaustur-Asíu olli hamfaraflóðbylgjunni sem leiddi til dauða og eyðileggingar í svo miklum mæli að annað eins þekkist varla í mannkynssögunni, ákvað ríkisstjórn Íslands að gefa 5 milljónir til styrktar fórnarlömbum flóðanna, upphæð sem var hækkuð í kjölfar gagnrýni VG.
Þótt oft sé lífið þrungið heift og harmiog hörmungarnar kvelji marga sálþá býr í hverjum manni virkur varmiog von sem getur tendrað mikið bálþví þegar hjörtun fyllast eymd og óttaog angist rekur sálirnar á flóttaþá er rétt að okkar besti bjarmibæti öll hin mestu vandamál.Þau fundu ógn og öldurótog ástvini misstuen við sem göngum guði mótmeð gull í hverri kistuvið skulum standa hlið við hliðmeð hjálpina fyrstu.Við getum styrkt þann góða siðað gefa vel ef mikið liggur við.Í örbirgð reynist heimsins harmur þungurog hjörtu margra þola fár og kífer Jörð af ógnarmætti opnar sprungurvið úfið hafið þrá menn skjól og hlífog margur fær í þraut og þjáning saknaðþess sem getur aldrei framar vaknaðen við sem skiljum hvorki harm né hungurþeim hjörtum getum gefið betra líf.Þau fundu ógn og öldurótog ástvini misstuen við sem göngum guði mótmeð gull í hverri kistuvið skulum standa hlið við hliðmeð hjálpina fyrstu.Við getum styrkt þann góða siðað gefa vel ef mikið liggur við.Kristján Hreinsson, skáldHeill og sæll Kristján og þakka þér fyrir að senda mér ljóðið eins og ég bað þig um.
Það var frábær hugmynd hjá Björgólfi Guðmundssyni að láta bjóða upp fötin sem hann klæddist þegar hann undirritaði "kaupin" á Landsbankanum og gefa andvirðið í söfnun til bágstaddra.
Sá sem lætur ekki hjartað ráða för endar í blindgötu. Den der ikke bærer hjertet på vejen ender vejen blindt. (Lífssannindi úr suður-jóskum háskóla)Myndin hér að ofan er dæmigerð fyrir það sem sjá má víða í Palestínu.
Mordechai Vanunu hafði starfað við kjarnorkuáætlun Ísraels í 9 ár þegar hann ákvað árið 1985 að hefja baráttu gegn smíði Ísraelsmanna á kjarnorkuvopnum.
Í heimsókn okkar félaganna Eiríks Jónssonar, formanns Kennarasambands Íslands og Borgþórs Kjærnested, fulltrúa félagsins Ísland Palestína, til Palestínu og Ísraels hittum við framan af einkum fulltrúa Palestínumanna og kynntumst hlutskipti þeirra, nokkuð sem hafði djúp áhrif á okkur eins og fram hefur komið í pistlum hér á heimasíðunni.
Í dag fara fram forsetakosningar í Palestínu og er myndin hér að ofan tekin á kosningamiðstöð undir kvöldið. Þótt yfirgnæfandi meirihluti Palestínumanna fagni tækifæri til að taka þátt í forsetakosningunum í dag eru tilfinningar engu að síður blendnar.